Ofan á örgjörvanum á að vera vifta, þú losar hana fyrst (ert kannski búinn að því?)Örgjörvinn er ferkanntaður kubbur, líklega sá sem sést á myndinni sem þú sendir með (hún er svo lítil, erfitt að sjá hvað er á henni) en svarti kubburinn fyrir ofan vinnsluminnis slottið er örgjörvinn. Til að losa hann þá lyftir þú sveifinni sem er sýnist mér fyrir ofan örgjörvann, þú ættir að sjá litla sveif, lyftir henni alveg upp í 90° þá er örgjörvinn-kubburinn laus. Til að setja nýjan örgjörva þá smellir þú honum niður eins og hinum, passar bara að hann snúi rétt þ.e. að örin vísi í rétt horn og setur sveifina aftur niður, skoðaðu hinn vel áður en þú tekur hann úr! Settu svo örgjörvaviftuna ofan á og smelltu spennunni fastri. Annars er spurning um að vera að vasast í þessu ef þú ert ekki viss um hvað þú ert að gera :) Lestu þér þá vel til áður en þú ferð að stússa þetta :) Gangi þér vel!!