Núna í dag þá komst lærði ég alveg “magnaðan” hlut
Tölvan mín fór ekki í gang og ég kveikti á henni aftur og aftur, ég er með svona Dr.Voice sem að er rödd sem segir mér þegar ég kveiki á tölvunni… að það sé eitthvað að henni.
Þetta er Aopen ak73 proA móðurborð (með þessu dr.voice) og Dragon kassi.
Svo datt mér eitt í hug, ég minntist þess að mamma hafði sagt mér fyrr um morguninn að kaffivélin hefði slegið út allt rafmagnið í húsinu, þ.e.a.s. lekastramsrofann fyrir inntakið í húsið, ekki öryggið eins og venjulega gerist þegar eitthvað tæki slær út.
Þannig að ég prófaði að aftengja tölvuna og jarðtengja hana með static-armbandinu mínu og nú fór hún smurt í gang!
Getur einhver sagt mér af hverju þetta virkaði?, ég er nokkuð viss um að þetta tengdist því að öryggið sló út af húsinu.