Ég var í sömu hugleiðingum um daginn áður en ég keypti mína.
Basic kröfurnar sem ég gerði var góður gjörvi, gott minni, 15“ skjár og hærri upplausn en 1024x768 og að hún kostaði ekki meira en um 200kall. Algjör óþarfi að eyða meiru í lappa en það.
Nýherji (IBM) kom ekki til greina v/þess hversu dýrir þeir eru.
Mitac vélarnar virtust vera ágætar miðað við verð en því miður komst upplausnin ekki í hærri en 1024x768. DELL vélarnar virtust fínar en mér sýndist ég þurfa að eyða lágmark 250þús til þess að ná mínum basic kröfum.
Á endanum keypti ég Fujitsu Siemens frá BT á um 200kall og hún skítvirkar, 2.4gig, combódrif, 512DDR, 15” skjár, 1400x1600 hámarksupplausn, Bluetooth, infrarautt etc.
Merkið er kannski ekkert sérstakt en hún skítvirkar og ég er sáttur;).