Gleymt lykilorð
Nýskráning
Vélar

Ofurhugar

Mal3 Mal3 2.096 stig
Aiwa Aiwa 1.770 stig
KITT KITT 1.650 stig
Dashinn Dashinn 1.480 stig
JoeyThunder JoeyThunder 1.296 stig
wiss wiss 1.264 stig
sputnik sputnik 1.244 stig

Tjörnin heima (5 álit)

Tjörnin heima Ég að leika mér á tjörninni heima, ótrúglega gaman að hjóla á ís.

Messerschmitt Me 262 (3 álit)

Messerschmitt Me 262 Fyrsta þotuhreyfilsflugvél þjóðverja í WW2

Hún kom þó allt of seint í stríðið

Ég tel ásamt mörgum öðrum að ef hún hefði komið fyrr í stríðið hefði það kannski farið öðruvísi

Meiri upplýsingar hér :

http://en.wikipedia.org/wiki/Messerschmitt_Me_262

Webber Crash (2 álit)

Webber Crash Mynd tekin á mótinu í Valencia þar sem Mark Webber lendir á Heikki Kovalainen þegar að Heiki bremsar mjög snemma fyrir beygju 12 held ég eða það gæti líka verið beygja 17

Ég freeride (4 álit)

Ég freeride ég að leika mér í freeride í byrjun febrúa

Ég á selfossi (1 álit)

Ég á selfossi þett mun vera ég í selfossbrautini þann 10.mai 2010;)

McLaren F1 (5 álit)

McLaren F1
Þessi bíll er ein sú mesta snilld sem framleidd hefur verið.

Árið 1998 setti hann met sem hraðasti “fjölda”framleiddi bíllinn, upp á 390 kílómetra hraða. Einungis hafa 3 fjöldaframleiddir bílar náð hærri endahraða.

Bíllinn hóf framleiðslu árið 1992 og voru rúmlega 100 bílar framleiddir, og þar af var gerð raceútgáfa af þessum bíl til að keppa í sólarhrings kappakstrinum á LeMans brautinni í Frakklandi. Eftir að hafa googlað LeMans keppnir sem McLaren F1 tók þátt í þá vann hann þó nokkra sigra.

Þessi skutla er búin 6,1 lítra V12 bensínmótor frá BMW sem er með þeim flottari mótorum frá því kompaní.

Bíll þessi var smíðaður í Bretlandi og átti að vera hugsaður fyrir snobbarana í golfklúbbum landsins. Má því geta þess að bílstjórasætið er fyrir miðju bílsins til að fá sem best handling.

Ekki eru farangursgeymslur til að hrópa húrra fyrir, en kommon, þetta er supercar. Fyrir snobbarana var komið fyrir hólfi á hliðinni til að geta lagt frá sér golfsettið og þar sem mótorinn er afturí er því svona aumingjaskott ef svo má að orði komast í “húddinu”.

Eftir að hafa hugsað um það í mjög langan tíma (tek ekki fram hve langan, en hann er búinn að vera langur) þá hef ég komist að því, að ef ég fengi nokkurntímann að velja mér bíl til að prófa og leika mér á í einhverri af þeim brautum sem þessir bílaþættir eiga, myndi ég ekki hika við að velja mér McLaren F1.


Ég leyfi svo eldgömlu Top Gear myndbandi að fylgja þar sem Tiff Needell fer yfir þennann frábæra bíl, löngu áður en hann hóf að framleiða Fifth Gear.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=t7Azl-drqMk

Hjólið mitt (4 álit)

Hjólið mitt Þetta er nýja hjólið mitt. Soldið búinn að leika mér með myndina í Photoshop. En þetta er Honda VTR 1000 SP1. Það er með 999 cc V2 vél sem er 136 hp. Þetta er frekar of öflugt hjól fyrir mig þar sem ég er búinn að hafa prófið í aðeins meira en einn mánuð en ég vill frekar gera þetta vel ef ég er að fara útí þennan pakka.

Nýji minn (6 álit)

Nýji minn Seldi Eclipseinn og fékk mér þennann í staðinn :P

00' Subaru Impreza GT

það sem komið er
3“ púst ( er að bíða eftir 3” downpipe )
Opin sía
önnur bína blása 12psi eða 0.8bar
Boost Mælir
stillanlegt bensínflæði ( uppá að hann koki ekki )
læst forester afturdrif
legacy gírkassi ( meira upptak en styttri endahraði )
WRX körfustólar
einhverjar græjur 2x 12“ keilur og 6x9” hátlarar á hillu virkar fínt
17" gylltar Lenzo felgur

kem með betri mynd seinna og update ;)

TF-FGA (0 álit)

TF-FGA Diamond DA-20C1 Eclipse frá Geirfugli, hitti hann í austursvæði og tókum smá A2A myndir.

Annar draumur :P (13 álit)

Annar draumur :P peugeot 205 gti bílarnir voru bæði til í 1.6 og 1.9 útgáfum, þessir bílar eru þektir fyrir að vera með þeim vinsælustu “hot hatch” bílum frá því 1980 og eru það en í dag.
Þeir eru örlítið erfiðari í beigjum en nútíma bílar, aðalega útaf því að þessir bílar eru einganveginn með neina “driver assist” tölvu búnaða og eiga til með að oversteera í erfiðum beigjum, en ef hann er í höndum á góðum bílstjóra er hann frábær á þröngum og erfiðum brautum, eða eins og Geremy Clarksson sagði “Í erfiðum brautum stingur hann af bíla eins og Lambourgini Diablo og Ferrari bílana”.
Hann er einnig þektur fyrir að hrella Porche bílana fyrir að höndla svona vel, en Porche hafa mikið lagt í að ná bílunum í gegnum beigur eins hratt og möfulega er!
Munurinn á 1.6 bílunum og 1.9 var aðalega nokkrir partar í innspítingunni, olíukælir og stærri sinlítrar (1.9), síðan var 1.9 með leður að innan og á 15 tommu felgum en 1.6 var með 14 tommu, 1.9 var með diska bremsur allan hringinn en 1.6 var bara með diska að framan.
1.6 var mjög þekkt fyrir að vera mjög fljót upp og aggresív en 1.9 var frekar latari og torkaði meira, en ekki miskilja mig þar því að 1.6 var bara með hestafla tölu frá 105 upp í 115 (fór eftir árgerð), á meðan 1.9 var með allt frá 122 hö upp í 128 hö.
þó svo að þetta séu frekar lágar hestafla tölur þá eru frakkar þektir fyrir að láta vélarnar sínar vinna mjög vel, eða fáránlega vel og síðan er þingin á þeim ekki nema 880 kg á meðan margir bílar í dag eru að nálgas 1 og 1/2 tonn.
Mig hefur alltaf dauð langað í 1.9 bílinn síðan ég átti 1.4 favorit sem mér til mikillar undrunar tók mmc eclips, ég helld að gaurinn í eclipsinum hafi líka verið hissa :P
Ef þú trúir ekki hversu brjálaður þessi bíll er mæli ég með að þú talir við einhvern sem á svona bíl og byðjir um að fá að sita í bílnum með honum, hann á ekki eftir að leifa þér að keira hann ;)
þakka þér fyrir lestur, afsaka stafsetningu og gangi þér vel :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok