Góðan daginn -

Ég er 19 ára og hef því ekki enn leyfi til þess að skjóta úr byssu. En engu að síður hef ég farið með pabba mínum nokkrum sinnum á ári til rjúpnaveiða og þó svo að ég sé bara að labba með þá finnst mér það skemmtilegt.

Núna líður að því að maður verður 20 ára og þá mun það verða mitt fyrsta verk að útvega mér byssuleyfi og kaupa mér byssu.

Því langar mig að vita með hverju þið sem eruð vanir einhverju mælið með fyrir byrjanda. Einnig væri gaman að fá einhverjar útskýringar á helstu hugtökunum varðandi byssur, jafnt riffla sem haglabyssur.

Með von um einhver svör,
Nonni