Sammála síðustu ræðumönnum. Eru menn búnir að bóka einhverja túra, eða farnir að plana sumarið? Ég er búinn að bóka tvisvar í fljótaánna, einu sinni í Eyjafjarðará og tvisvar í sogið. ´Ég ætla aðallega að stunda sjóbleikju í sumar. Það verður örugglega gaman fyrir norðan í fljótaánni, því það er búið að stytta veiðirímann í tvo mánuði, og aðeins er leyft að veiða á flugu. Síðasta laxveiðisumar var svo slappt að það er kominn tími til að hvíla sig á laxinum. Annars er alltaf mjög gaman að skreppa líka á þingvallavatn á góðviðrisdögum.