Sælir hugarar.
Því miður þá er það þannig í dag að ef þú vilt eitthvað almennilegt, þá skaltu borga fyrir það. Því þegar þú borgar fyrir það, verður viðtakandi að standa sig svo að þú haldir þjónustu áfram hjá honum. myweb.is er frítt og greinilega eru menn ekkert að standa sig þar sem ekkert fjármagn er.
Ég ætlaði með þessum orðum að vinsamlegast til að fá fólk til að hætta að spamma póstum með niðrandi setningar um þessar síður, og ég tek það fram að ég er ekki að halda verndarvæng yfir þessu fólki sem lofar uppí ermina á sér og geta ekki staðið við það. Já og kannski líka að það eru til fólk sem gefur þessa og betri þjónustu fyrir lítinn pening *hóst*stuff.is*hóst*.
Vinsamlegast haldið þessu helvítis væli fyrir sjálfan ykkur. Peace out.