Sælir, sælar.
Ég er að vinna í heimasíðu núna og er að reyna að adda inn mynd sem passar alveg beint í í rammann sem ég er með (frame) Sko, ég fer í: File, new page, frames page og vel þar Banner and Contents. Ok þegar ég er búinn að því þá hægri clicka ég á rammann (frame-inn) sem er efst uppi þar sem margir skrifa “Velkomin á síðuna mína” Og einhvað álíka.
Ok, eins og ég sagði þá hægri klikka ég á hann og klikka á “frame properties” Ég er að reyna að finna víddina (width) og hæðina (height) og þar stendur..
Frame size:
Column With [ 1 ] [ Relative ]
Height [ 113 ] (ekki default tala, ég hef bara víkkað rammann)
___________________________
Margins:
Width: [ 12 ]
Height: [ 16 ]
___________________________
Jæja, svo fer ég í photoshop og fer í “New..” Og vel þar hvað myndin á að vera með mikla width og height, ég skrifa það sama og stendur í front page en ramminn verður pínku lítill!
Vitið þið hvað ég get gert? Og já.. ég hef stillt þannig að þetta sé bæði stillt í pixlum, bæði photoshop og front page.
Megið sleppa að koma með leiðileg comment.
Takk fyrir.<br><br>kv. Hoddey
<i>Practice make you perfect.. but why practice nobody is perfect.</i