Ef þetta keyrir á Apache server þá geturðu notað eftirfarandi aðferð:
Segjum að skráin sem geymir villuboðin sé 404.html.
Þá býrðu til skrá sem heitir “.htaccess”.
Í hana seturðu eftirfarandi:
ErrorDocument 404 404.html
Það eru til fleiri villuboð sem þú getur gert svona fyrir, eins og:
403: Forbidden, það er bannað að skoða þessa möppu
401: Authorization Required, ef þú hefur haft login dæmi eins og þú sérð þegar þú ýtir á síðan mín hérna efst á huga og notandanafn eða lykilorð er vitlaust
Svo eru fleiri eins og 500 til dæmis, en ég efast um að þú eigir eftir að nota hann.