Hvaða endalausa væl er þetta um hvort einhver hafi verið dónalegur eða hvort einhver textasíða sé ljót eða ekki. Er ekki komið nóg. Þetta áhugamál er fyrir vefsíðugerð en ekki barnalegar vangaveltur um orðalag. Þetta er fínn staður, svona oftast nær, en þegar þið byrjið þá virðist ekki vera nokkur leið að stoppa. Hátt í 200 póstar um einhver strák útí bæ sem orðaði póstana sína ekki nógu vandlega. Ef ykkur líkar ekki við þennan mann þá hættiði bara að svara honum, svo einfalt er það.

Ef ykkur vantar svona að tjá skoðanir ykkar á hinu og þessu þá getið þið farið á hugi.is/deiglan. Það er svona umræðuvefur!

Vona að ég sé ekki sá eini sem er búinn að fá nóg, en þar sem jákvæð svör við þessari grein myndu stríða gegn innihaldi hennar þá vona ég að þeir sem eru sammála mér svari ekki heldur hætti bara þessum mömmuleik. Og þeir sem eru ósammála, fariði á hugi.is/deiglan og úthúið mér þar, EKKI HÉR!


p.s. Til þess að komast fyrir 500 svör við þessari grein, vonandi, þá er ég æðislega frábært fífl sem veit allt um ekki neitt!