Já..
Þegar stórt er spurt er fátt um svör. Í fyrsta lagi, ertu að tala um moddin sem fylgdu með leiknum(þ.e. Capture the Flag, Domination, Assault, Deathmatch og Team Deathmatch) eða ertu að tala um þau modd sem sjást þarna niðri á þessari síðu? T.d. Infiltration, Strike Force o.s.frv. Ég ætla að gera ráð fyrir að þú sért að tala um Capture the Flag og þau.
Til þess að spila þau þarftu í fyrsta lagi að vera með version 4.36 en það er útgáfan sem kom með Game of the Year Edition disknum, þannig að ef þú ert með hana þarftu ekki nema að tengjast á skjalfti26.simnet.is:7777 og byrja að spila CTF(vinsælasta moddið í UT). Ef þú ert ekki með GOTYE, þá þarftu að ná í uppfærslu upp í 4.36(sem er líka hérna á huga, neðst á unreal síðunnu) Þegar þú tengist fyrst á serverinn þarftu mjög líklega að ná í helminginn af borðunum sem eru í gangi núna, en leikurinn nær sjálfkrafa í þau, þannig að ef þú ert þolinmóður nægir að tengjast bara á skjalfti26.simnet.is:7777 og bíða í smá tíma eftir dl-inu. Ef þú nennir ekki að dl-a af servernum geturðu dl-að af huga, CTFMappack 1-6 og svo Dm-pökkunum tveimur. Þá ættirðu að vera vel í stakk settur og getur byrjað að spila á fullu. Velkominn í UT.
~H2O~Svolfluga~