Ég skaut Svenna (pisser) út í lava því hann gerði ekki neitt. Ég var með flaggið og í stað þess að reyna að skila “okkar” flaggi þá hékk hann utan í mér allann tíman, svo stoppaði hann á brúninni hjá lavainu í smá tíma og ég notaði tækifærið, því ég var orðin frekar pirraður á heimskulegri spilamennsku, og henti honum útí. Þá var ég kallaður fáviti og nokkrum sekúndum síðar skipti Svenni (pisser) um lið til að vera með Delphigiz (vaffleprix) í liði þó svo að liðin hafi ekki verið ójöfn.
Ég held, og hef séð það oft áður, að þetta hafi verið planað frá því þeir tveir komu inn á serverinn. Því þó svo að svenni hafi í byrjun verið í bláa liðinu þá hafi hann ekki ætlað að gera neitt fyrir það lið. Ég þekki Svenna og hef verið heima hjá honum þegar hann spilar svona (sem njósnari) þar sem hann reynir að valda meiri skaða fyrir sitt eigið lið og leyfa hinum að vinna, kjaftar í þá sem eru með honum á LANi hvar sinn flaggberi er svo að “vinur” hans sem situr í sætinu við hliðina á honum geti farið og skilað flagginu.
Delphi, ég myndi passa mig á því hvernig maður segir frá hlutunum. Það má ekki gleyma að segja hvernig þessi svokallaði “teammate” var að spila. Og þó þið hafið vitað upp á hár hver ég var, og hvernig ég myndi bregðast við, þá stoppaði ykkur tvö félgana ekki í því að vera með svívirðingar á minn kostnað.
Fyrst þér finnst svona gaman af “tuddabolta” farðu þá á einhvern server sem er með svoleiðis og láttu þetta samfélag bara eiga sig, og þú mátt biðja þessa svokölluðu vini þína um að gera það líka. Ég veit að ég tala fyrir hönd admina þegar ég segi að við allir erum orðnir mjög þreyttir á ykkur (þá er ég að tala um þetta fólk sem er að væla og kvarta útaf öllu sem við gerum).
friður
potent