Til höfundar H2O Svenna: Greinagerð vegna fyrirspurnar um inngöngu í H2O.
“Can´t beat them, Join them.” - þetta er hugarfar fyrir flyðrur og eimingja. Can´t beat them, BOMB THEM. Og það hyggst ég gera, til að ná ykkur aðeins niðrá jörðina þið hásætispotarar og hræsnarar. Og sýnist hverjum um meint eðli mannsins þar sem það er sem betur fer misjafnt í sauðinum nema í Czar-sauðinum þar sem það er fyrirsjáanlegt. Það velur enginn tap-liðið þar sem úrslit fæstra leikja er ráðinn fyrirfram. En gæti það mögulega verið hugsunarháttur ykkar H2O manna að leikir séu unnir fyrirfram og hver er þá tilgangur ykkar að spila? nú auðvitað að geta stært sig enn betur af glæstri sigurgöngu. Þið klýfið leiðinlegt fjall herrar í H2O en þeim hærra sem brölt er því styttra verður á toppinn fyrir þá sem þangað komast.
Eigi örvænti ég svo gjörla minn ástkæri Svenni, hygg ég þó að ég yrði ekki dugandi “public relation” (það útleggst fyrir fávísum sem almannatengslafulltrúi). Því ég laga ekki mínar skoðanir að heildinni. Þótt þið sjáið eflaust góða brú í því að gelda sauðinn áður en hann bankar á hornin sín, þjónar það þeim tilgangi einum að kæfa umbætur. Og hafðu það í huga, að valdið sem þið hafið… er ekki réttmætt vald. Þið hafið svo gjörla snúið því ykkur í hag og misnotað það til myrkaverka að það ærir óstöðugan að verða hluti af því veldi. Ég gæti farið að glápa á sjálfan mig sem eitthvað merkilegt. Allt annað sem fylgt gæti inngöngu minni í H2O órar mig við að vita hvað er. Kannski hálfpottur af flóðuðu stolti yfir að vera hluti af besta clani á Íslandi. Það þurfti nú engan snilling til að sjá út boð um inngöngu í H2O úr fyrstu efnisgreinunum. Og þá er spurning, ertu að skrifa þetta sem bónorð til mín… eða þjónar þetta tilgangi almannatengsla til að fegra ímynd H2O í UT heiminum??? Og minnist ég þá orða þinna eftir síðasta DM match okkar H2Osvenni:“ef þú hefur eitthvað að segja segðu það þá beint við mig” Ágætur, ég fæ enn gæsahúð af þessari setningu… því miður skildi ég aldrei hvað þú áttir við. Enda hóf ég aldrei neitt annað en umræðu um CTF á Íslandi ekki persónulega árás á yður! Og enn kemur gullmoli, auðvitað eruð þið góð grúbba enda við litlu öðru að búast. Ég reyndar leyfi mér að efast um að ég verði mjög góður UT spilari nokkurn tímann, hitt er ljóst að ég spila leikinn uppá gamnið enda þarfari þörfum að sinna. Það er hins vegar sorglegt að þig skortir þann anda sem þú hafðir á sínum tíma eins og þú segir, því hálf geldur er hann núna. Þessi p.s. nóta er mér með öllu óskiljanleg að taka mig í klóstið. Ég er ósvagur fyrir klóaki hverskonar og kýs að halda mig frá því… en menn eins og Czar minna mig stöðugt á að halda minni fjarlægð. Það er þó ánægjulegra að undirlægjur andskotans þú og bunny hafið í sameiningu skrifað þetta bónorð. En sem stutt svar geng ég ekki í fremsta klan á Íslandi, því þá er betra að reyna að sigra þetta klan. Því er þessari bón hér með synjað!
————-
[DF]4EVER
WuTangThis