Ég sé að þetta leiðindamál eru að sumu leyti mér að kenna þar sem ég svaraði Draugsa
“á huga? Get ekki sagt að ég hef orðið var við það.”
Og hann þurfti endilega að svara á korknum, hefði betur farið á milli í msn messenger.
Staðreyndin er að þið eruð báðir búnir að koma með góða punkta en einnig nokkra slæma. Þessi póstur er ekki til þess að endurvekja eldinn heldur til að slökkva í honum aðeins ef ekki að fullu.
WuTangThis: Þér er auðvitað guðvelkomið að hafa hvaða nick sem er. Mér finnst fáránlegt að Draugsi hafi dissað það eitthvað, sérstaklega þar sem ég hef auðvitað fengið skítkast út á mitt nick. Svo auðvitað greinin með CTF að breytast í DM. Ég er sammála þér að mörgu leyti þar en staðreyndin er að fólk er að keppast um stigin og þess vegna er þetta spilað meira eins og DM. Fólk er að reyna að sýna sig svo að þeir fái recognition. Stigin eru það eina sem sýnir það á CTF server. Þeir sem eru með backup falla svolítið í skuggan á þeim sem eru með flestu stigin og capturin. Draugsi er samt búinn að bjóða þér friðarpípuna og best að þú myndir samþykkja hana, ekki út af Draugsa, mér eða Potent heldur út af UT samfélaginu í heild sinni. Við erum það fáir að það er fáránlegt að rífast út af einhverju.
Svo er það Draugsi, hann fær ekki að sleppa gagnrýni þótt að ég sé með honum í Klani.
Draugsi: Það gæti vel verið að gaurar séu alltaf að velja boss modelið (sem er bara allt í lagi að mínu mati) og eru að böggast í öllum. Auðvitað er það leiðinlegt en staðreyndin er að fíflin nenna oftast bara að spila leikin í örfáan tíma. Best er að ignora þá, annars hætta þeir aldrei. Annað sem ég ætla nefnast á er gagnrýnin á greinina hans WuTangThis. Hún átti allan rétt á sér og hann var greinilega bara að velta þessu fyrir sér. Engin ástæða fyrir að ráðast á hann þar sem það er prentfrelsi hérna á Íslandi. (eða svo hélt ég) Í þriðja: Það var engin ástæða fyrir að ráðast á nikkið hans. Augljóslega fílar hann WuTang og er það hið besta mál. Persónulega fíla ég ekki WuTang og mér sýnist að þú gerir það ekki en það þýðir ekki að hann megi ekki fíla það.
Þú aftur á móti bauðst til þess að gleyma þessu og friða þetta mál þannig að þú færð púnkt fyrir það.
Ég nenni ekki að heyra neina flame pósta á eftir þessum pósti. Ég er að reyna að stoppa þetta. Það er engin ástæða fyrir að vera með svona bögg út í hvorn annað. Þið megið auðvitað svara þessum pósti ef þið hafið eitthvað gáfulegt að segja fyrir ykkar hönd en ekki “grautarheili” eða “fáviti”. Gröfum stríðsvélsögina því hennar er ekki þörf. Það er heldur engin ástæða fyrir að útkljá þetta mál eitthvað lengra, þeas á serverum eða einhvers staðar annars staðar.
Well ég er farinn aftur í EverQuest, mér sýnist fólk vera vingjarnlegra þar.
Ég er ekki að biðja ykkur um að vera hippar bara að fyrirgefa hvor öðrum.
Ég kveð ykkur í bili, adios.
<br><br>—————————
“All Your Base Are Belong To Us”
www.svanur.net
[------------------------------------]