Unreal 2 Ég ætla að taka smá innihaldslýsingu af nýja leiknum Unreal 2. Efni er fengið af www.unreal2.com
Unreal 2 er framhaldið af upprunalega Unreal leiknum. Leikurinn á að koma út seinni hlutan á árinu 2002. Fyrirtækið sem hannar hann heitir Legend Entertainment en Epic games hannar hann ekki eins og fyrri leikina. Minimum búnaður er 600 mhz og Ge-Force skjákort. Allar persónur í leiknum eru nýjar nema Skaarj skrímslin
Leikurinn gerist í “fictional” heimi. Hann byrjar þegar þú ert í gamalli geimflaug sem kallast Atlantis og var notuð í einhverju stríði. Áhöfnin þín eru tveir menn og ein geimvera. Ne’ban, geimvera, er flugmaðurinn þinn. Isaak er verkfræðingur sem heldur skipinu gangandi og Aida sem er kona sem er eins konar aðstoðarmaður þinn.
Í leiknum lendirðu í stríði á milli geimvera. Hér er stutt lýsing á ensku
“Things are quiet… until the sector erupts in a full-scale interstellar war. Battles rage on and around more than ten vastly different worlds as several alien races, multiple mercenary armies, and the infamous Terran Military engage in fierce combat. You are caught in the middle of the fighting, and must balance your responsibility to protect the colonists, archaeologists, miners, and other civilians in your sector… with the duty to discover the source of the conflict and put an end to the war.”

Leikurinn skiptist í verkefni eða missions og á milli verkefna ferðu í Atlantis og færð upplýsingar um næsta verkefni frá Aida. Verkefnin geta verið mismunandi t.d assault með vina hermönnum, verja staði, gísla björgun, eitthvað að fylgja borgurum og fleira. Andstæðingarnir eru t.d skrýtnar geimverur og mennskir hermenn. Á leiðinni finnuru alltaf ný vopn, betri og betri. Það eru nokkur ný vopn en haldið er í nokkur gömul vopn s.s Rocket launcher og Sniper Rifle. Vopnin eru t.d Grenade launcher sem skýtur handsprengjum, poison gas, og einstakar handsprengjur. Nýju vopnin eru Leech gun sem tekur líf andstæðingsins hægt niður, Takkra sem sleppur drápsvélum sem finna og drepa andstæðinginn og annað vopn sem kallast Mindclaw. Það verða samtals 15 vopn. Það verða 24 andstæðingar en Skaarj verður sá eini upprunalegi úr Unreal, hinir verða allir nýjir.
Efni tekið af www.unreal2.com
Þetta var bara stutt lýsing á Unreal 2 leiknum en hvað veit ég, ég hef ekki prófað hann þannig sumt af þessu gæti verið rangt :)

±TbF±Roadrunne