“Verkacht!” (eða hvernig sem það er rétt stafsett) er upphrópun á jiddísku sem þýðir “geðveikt” eða “ruglað”. Þetta tungumál er því miður að verða útdautt, en virðist hafa verið oft stórskemmtilegt.
Allavega, fyrst þetta var ekki tæknimál á jiddísku, þá kemur held ég bara tvennt til greina:
1) Þýsku-mállýskan sem töluð er í Alsace í Frakklandi og stundum kölluð “Allemanníska”
2) Þýsku-mállýskan sem töluð er í Lúxemborg og stundum kölluð “Lúxemborgíska”
Þar sem dæmið að ofan virðist líka nokkuð hollensku-skotið, ætla ég að giska á 2.
Það er mitt lokasvar, ef þetta er ekki rétt gefst ég upp :)
_______________________