Er einhver framhaldsskóli á landinu sem býður upp á fjarnám í rússnesku? Langar svo rosalega til að taka einhverjar einingar í rússnesku þegar eitthvað dettur úr stundatöflunni, er nefnilega stútfull!
Í hvaða skóla? Ég tók hann í MH á sínum tíma, og hann hefur verið kenndur þar einu sinni aftur eftir það - en kennarinn var víst hræðilegur svo það er líklegast ekki mikil aðsókn í hann þar núna…
Peace through love, understanding and superior firepower.
Já oj kom líka fyrir mig >:( Skráði mig í rússnesku en það voru bara einhverjir 3 aðrir (af 800 krökkum í skólanum) sem skráðu sig þannig áfanginn var felldur niður.. :( Langar svo að læra þetta mál.
google “ free online russian language course ” athugaðu hvað það gefur þér til að byrja með, svo er hægt að tala við ráðuneytið og sjá hvað þeir gætu átt til af efni, og eða rússnesku réttrúnaðarkirkjuna… þetta er eitt af stóru heimsmálunum og á að vera mjög aðgengilegt
hellingur til… eins og ég segi alltaf… netið er orðin risastór gjaldfrjáls fræðslustofnun, maður fræðist og fiktar og fer svo í þá sem maður veit að kunna þetta til að staðfesta sjálfsnámið :-P gangi þér vel í Rússneskunni, kalashnikov.
Heyrðu, ég veit að þetta er svolítið gamalt, en ef þú hefur ekki fundið neinn skóla veit ég að rússneska er kennd í fjarnámi frá ME (fjarnámið er nýtt, þess vegna fann ég þetta ekki áður). Reyndar er RÚS 203 núna (og verður mjög líklega kenndur miðað við þátttökuna í 103 á þessari önn). En þú veist þá af því ef þú hefur ekki komist í áfangann núna að hann verður kannski kenndur í ME næsta haust.
Ég er búinn að skoða þetta með Verzló en það er Rús103 kenndurá næstu önn, ég ætla í fjarnám í honum btw en ég er líka búinn að skoða örlítið með þennan Rús203 sem er kenndur í ME og get ég vonandi tekið hann eftir að ég er búinn með Rús103 hjá Verzló (þeir eru bara með einn áfanga). Það var reyndar einhver annar búinn að benda mér á hann áður en þú kommst en spassíba (takk fyrir) :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..