“nýju” gítararnir mínir. Fékk Lessuna seinasta fimmtudag en þennan bláa fyrir einhverjum vikum.
Byrjum á Charvette gæjanum.
Þetta er semsagt Charvette gítar sem að var dótturfyrirtæki Charvel. og þar sem Charvel var systrafélag Jackson er þetta svo eins og litla frænka Jackson gítarana minna. Mjög fínn í háls í honum en böndin eru orin allveg vel notuð enda gítar frá svona sirka 1990. Er með Charvel pickuppum, einum single coil í neck og svo með humbucker í brúnni. Humbuckerinn er eitthvað skaddaður eða þá að rafkerfið sé að stríða honum svo ég hef ekkert notað hann en neck single coilinn hefur fínan tón. Rafkerfið er samt mjög cheap og gítarinn mun fá mikla yfirferð næst þegar ég á pening til ða fara að spreyja og standa í pickuppa kaupum. Er mjög frifinn af þessum hérna og er mögulegt að hann muni verða eitthvað svipaður honum
http://grimmusic.grimfacts.org/sold/Charvel4.JPGVerst bara að ég er ekki með svart hardwere í honum. En gítarinn er líka með svona semi floyd rose, allveg hægt að gera allt sem floyd gerir með því en þetta er frekar cheap licensed útgáfa af því. Samt þægileg að mínu mati.
Hann mun allavega verða góður einn daginn eftir nýtt paint job, pickuppa og rafkerfi.
Lessan er svo nýji dýrgripurinn. Ég hef í rauninni aldrei verið hrifinn af lessum og flestum gibson gíturum en ég er strax orðinn ágætlega vanur þessum. Er nú samt ekki viss um að hann sé keeper en for now er hann afskaplega fínn. Mjög þægilegur háls á honum og frekar spes að spila á svonan mjóann háls. allir mínir gítarar eru með soldið fender style hálsa svo að þetta er mjög frábrugðið öllu sem ég á.
Og já, ég áttaði mig ekki á því fyrr en að e´g var að skoða myndina að ég er með tvö Cannibal corpse plaköt þarna. Þarf að breyta því :P