Ég er búinn að gera un-install/re-install tvisvar en allt kemur fyrir ekki, ekki get ég spilað leik inn í leiknum.
Ég get fiktað í options sem eru nú ekki margir fyrir gæða stillingar á leiknum sjálfum, get keypt og selt leikmenn, búið þá til eða fiktað í leikmönnum sem eru nú þegar í leiknum.
Það er system check möguleiki sem ég ákvað að nýta mér og fann það út að þrátt fyrir að vera með AMD Athlon 64 3800+ sem hefur core speed 2413-5MHz og bus speed 201.3 að þá segir þetta system check að cpu speed hjá mér sé -1881MHz
Þar sem að leikurinn þarfnast lágmark 200MHz cpu speed þá finnst mér það undarlegt að sá örgjörvi sem ég er með höndli það ekki.
Ef einhver hefur hugmynd um hvað ég get gert og/eða hvernig ég get fengið leikinn til að virka þá yrði það vel þegið.
Þar sem þessi leikur er í raun “útrunninn” fyrir löngu, þá hafa þær síður sem ég hef skoðað eftir að hafa lent í þessum vandræðum ekkert getað hjálpað og það sem verra er, hann er svo gamall að það er ekki hægt að skrá leikinn inn hjá EA Sports.
Bætt við 28. júní 2007 - 15:07
Ég vil nefna það einnig að ég get spilað NHL2000 frá EA Sports, án nokkurra vandræða á þessari sömu vél.
BC Rich NT Virgin, BC Rich NJ Deluxe Warlock5, BC Rich Warlock NJ Series(1986-'88), BC Rich ASM Pro Neck-thru, Jackson Kelly KBX