Battlefield 1942
Ég er einn af þeim sem finnst gaman að spila Battlefield, og ég spila aðallega bara single-play. En þegar maður er að ganga um borðin og leita af óvinum, þá pælir maður stundum í þeim smáatriðum sem vantar í leikin sem mundi gera leikin miklu “raunverulegri” eins og td. einkabílar eða vörubílar, bílarnir þyrftu einu sinni ekki að geta keyrt, heldur bara verið hluti af umhverfinu til að gera hlutina raunverulegri. Það vantar líka að byggingar hafi smáatriði sem sýna hvort bygging sé td. Hótel eða verslunarhúsnæði. Og hvað með venjulega borgara, maður gæti til dæmis fengið mínus-stig fyrir að drepa saklaust fólk. Yrði sennilega ekki mikið af þeim en samt nóg til að vera stundum fyrir manni! Ég er líka með fullt af öðrum hugmyndum, en hvað finnst ykkur?