Ég held að það sé enginn hér, (sem er þá fær um að hugsa hálfa hugsun amk), sem gerir sér ekki grein fyrir þeirri einföldu staðreynd, að allt það góða fólk sem á það ágæta áhugamál sameiginlegt, sem hér er almennt rætt um, leika sér ekki mikið í leikjum í kössunum sínum, án þeirra sem halda kössunum gangandi og redda vandamálunum sem eru svo öskrandi margar og algengar þegar kemur að tölvum yfir höfuð.
Svo leiðist einum og verður að slefa og slafra yfir einn slíkann sem lætur vita af sér, og sinni ágætu þjónustu við okkur/ykkur leikjafíklanna, sem erum einmitt hópurinn sem hitar kassanna einna mest, og þarf sem mest á slíkri þjónustu að halda….
Fyrirgefðu en, afhverju kaupir þú (ágæti kvartari) þér ekki boxpúða eða vandamálaöskju og losar um pirringinn þar, í stað þess að hella bölinu þínu yfir einhvern sem er ekkert fyrir þér og er að bjóða aðstoð sína… segðu bara takk fyrir þetta, gott að vita af þér, segir fleirum, og hagar þér eins og manneskja með hæfileikann til að hugsa, en ekki reiður mannapi sem brjálast ef pissað er í hornið sem hann ætlaði kannski að pissa í seinna….
En svo yfir til þín, sem býður þessa fínu þjónustu…
Ég rak augun í Tattoobike?? Málar skvísan þar tölvukassanna fyrir ykkur?? Þá ertu á grænni grein vinur! Það eru engin að toppa hana ennþá hér á klakanum og fáir þó víðar og utar sé leitað! Líst vel á þig MAN!! ;)