Þetta ku vera Njáll Sigurðsson, eldri maður búsettur í Grafarvogi ásamt hundi sínum, Trygg.
Þess má geta að Njáll hefur unnið sem póstsendill undanfarin ár og hefur hann hitt þó nokkra dreka, þó engan jafn reiðan og Herra Petróníus, en hann hafði ekki fengið bréf frá landsbankanum í yfir þrjár vikur.
Bætt við 13. október 2010 - 15:58
Ef þið rýnið ítarlega í myndina sjáið þið ævilangan kunningja Njáls, ugluna Þröst. Þröstur hefur verið hjálparhella Njáls í fleiri ár og var meðal annars varafulltrúi Njáls er hann bauð sig fram í bæjarstjórn Grafarvogshverfis árið 1986.