Sammála, hvet fólk til þess að senda mynd af uppáhalds karakternum sínum úr LOTR, eða jafnvel skjáskot af skemmtilegu atriði og aðeins að fá smá umræðu. Reynið svo líka að hafa smá innihald í textunum, t.d. ef einhver sendir inn mynd af Gimla, ekki skrifa fyrir neðan myndina “Gimli”, reynið að segja eitthvað frá því t.d. af hverju hann er í uppáhaldi hjá ykkur o.s.frv. Skapar allt umræðu og gerir áhugamálið virkara og skemmtilegra. :)