Hefur einhver hugmynd um hvernig Entur verða í myndunum,ég veit að þeir eru fjögurra metra háir eða eitthvað álíka en veit einhver hvernig þeir verða í smá atriðum?
Enn sem komið er, hefur enginn mynd af Treebeard né öðrum Entum birst.
Reyndar segist einn maður á netinu hafa séð auka-trailer einhvers staðar og segist hafa séð Treebeard. Sagði hann hafa séð tré sem opnaði skyndilega augun og kom þá í ljós að þetta var Treebeard. En þetta getur alveg eins verið lygi hjá þessum manni líka.
Ljóst er hinsvegar að árás Enta á Ísarngerði sem var sögð af Káti og Pípni eftir á verður sýnd í rauntíma í mynd númer 2. <br><br>————————————————————————————————– “Spyrðu eigi Álfa ráða því þeir segja bæði já og nei.”
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..