Ok.. ég býst ekki við því að þú hafir lesið bók eftir Tolkien, því fjöldinn hefur aldrei verið tilgreindur(Nema að orkarnir voru það margir að þeir fylltu út Veggjavellina)
Í öðru lagi þá er það sagt beinum orðum að Mínas Morgúl hafi verið enn rammbyggðari en Mínas Tírið.
Í þriðja lagi hefði Mínas Tírið fallið ef Gondorar hefðu ekki fengið aðstoð frá Jóherrunum.
Ég tel Hjálmsvirki og Mínas Tírið vera veikustu virkin af þessum sem nefnd eru í könuninnni, því eins og allir vita þá eru menn ekki jafn sterkur kynstofn og þegar Númenar börðust við hlið Vala og Álfa í orustunum við Morgot.
Auk þess sem Mínastírið og Hjálmsvirki og Hornborgarkastali(Virkið í dýpinu) eru farin að falla í niðurníðslu.
Angbönd hafa sennilega verið rammgerðasta virkið á Ördu, nema kannski að Barað-Dur hafi komist í hálfkvisti við Angbönd