Reyndu við þessar(og þið hin að sjálfsögðu líka!), og bannað að leita á netinu. Enginn er verri maður þó hann viti ekki allt úr heimi Tolkiens hehe… ;-)
1. Hvað var Númenor kallað eftir að það hafði sokkið?
2. Til hvers var Rauða Örin notuð í heimi Tolkiens?
3. Hver/Hvað var Gúthwinë?
4. Hvaða tvær/tveir/tvö persónur/hlutir/skrímsli í heimi Tolkiens hétu Grond?
5. Hvað hét sonur Isildur's?
6. Hvar kom Gilraen fram í myndunum?
7. Hvaða svæði var þekkt fyrir sína góðu vínræktun? (Þeir sem hafa lesið Hobbitann ættu að vita að Bilbo notaði vín til að sleppa úr klóm Konungsins. Það var þetta vín.)
8. Hvaða orca-feðgar tóku þátt í The Battle Of Five Armies.
9. Hvað/Hvern nefndi Frodo, Strider? Eftir góðvini sínum.
10. Hver var það sem sá Samwise síðast áður en hann sigldi yfir hafið? Og hvaða hlut gaf hann henni áður en hann fór?
Pósta svörum eftir einhverja daga, þ.e. ef að enginn nær svörunum 100%.