Þessi könnun er rugl. ÞAÐ VANTAR AÐALL ÁLFANA! Eins og Feanor, hann var merkilegasti Álfur í Tolkien heiminum. Og bara lang flestir álfar í silmerilnum gera meira en Celeborn! Eins og Fingon og Fingolf og svo framvegis.
Ég er nú ekki alveg að skilja af hverju hann er að rífa sig, þessi könnun er allt í lagi. Ég held að flestir sjái greinilega að þetta eru bara álfarnir sem þjónuðu einhverjum tilgangi í LOTR bókunum. Þó ég hefði vilja bæta Cirdan inn í þar sem hann kemur aðeins fram(þó lítið) og meðal annars lætur Gandalf fá einn hringanna(man ekki hvaða).
Enn annars langar mig að spurja hvort þú sért búin að lesa Silmarillion?
Sko, ástæðan fyrir því að ég sendi inn könnun með þessum tilteknu álfum er að þetta eru aðal álfarnir í Hringadróttins sögu. Ég hafði alls ekki í huga að telja upp alla álfana úr ritum Tolkiens.
Ég sá það vel og ég hef ekkert á móti því. Ef þú lest svör mín við þessum kork þá kemur það skýrt fram og ég skil nú í rauninni ekki af hverju fuzz er.
Það er ósköp greinilegt að þessi könnun er ekki um alla álfana í Tolkien heiminum aðeins þá helstu úr LOTR bókunum. Auðvitað væru annars fleiri og ef til vill hefur Karat ekki lesið Silmarillion og ekki hægt að álása honum um það.
Í fyrsta lagi eru það “aðal” ekki “aðall” af því orðið “aðall” er orð yfir ríkidæmi. Og síðan er augljóst að þetta eru aðeins LOTR tengdir álfar og það þarf ekkert að gera þetta öðruvísi, þetta er góð könnun eins og er! Þú verður að vera opin fyrir svona löguðu af því það fer ekki allt eins og þú vilt og einnig er líka mjög líklegt að Karat sé ekki búin að lesa The Silmarillion og þá getur hann auðvitað ekki bætt þessum álfum við.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..