1. Þessi tískuflokkun virðist alveg vera að fara með suma. Stelpur mega semsagt ekki lengur vera úti í sólinni nema með mega sun-block, því annars verða þær skinkur? Hver sem er hlýtur nú að sjá að þetta er algjörlega órökrétt staðhæfing.
Ég viðurkenni samt alveg fúslega að mér finnst húðlitur sem ber þess vott að manneskjan stundi einhverskonar útivist fallegri en svona rosa hvíta, en sitt sýnist nú hverjum.
2. Þú ert með bleikar kinnar… Hvaða bleiki litur er þetta sem ég sé?
3. Þessi fyrir ofan mig giskaði rétt, ég var að leggja til að lita hárið upp undir rótina aftan á, eins og ég sá að nokkrar höfðu gert þegar ég googlaði þessa hártísku sem þú fellur inn í.
4. Ég ákvað að bæta við fjórða flokknum upp á flippið. Þessi liður svarsins míns er því algerlega tilgangslaus, nema þá flippið teljist tilgangur. Sem það gerir vafalaust í einhverjum tilfellum.
Atheists believe in the Goddess Athe, who is wise and powerful beyond measure. They are some of the most religious people in the world.