Ljóshært virðist fara þér betur af myndunum að dæma en þú gætir alveg borið það að vera dökkhærð ef þú litar það mun dekkra og litar augabrúninnar með. Svo verðuru líka að passa þig á því að hafa smá brúnku ef þú ætlar að vera dökkhærð. Ert miklu brúnari á ljóshærðu myndini og því kemur það betur út, en svo ertu mjög föl miða við hina myndina á dökkhærðu myndinni og það fer ekki vel saman að mínu persónulega mati að vera dökkhærður og fölur. Veit að ég er ekki að gera sjálfa mig skiljanlega en what ever.
Held að það færi þér vel að vera einhvern töff topp, ekki alveg þverklipptan heldur kannski svolítíð tjásaðan svo þú lítir ekki út fyrir að vera krakki. Þú ert með það hátt enni að það myndi klæða þig mun betur heldur en að hafa engan topp.