Ég get alveg verið sammála því að sumar skyrtur eru ekki fallegar girtar, en það sem ég er að tala um er það að klæðast bindi og ógirtri skyrtu á sama tíma. Það er alveg svakalega ósnyrtilegt. Svo meikar það líka voðalega lítið sens. Þegar maður er girtur er maður aðeins formlegri en ella og bindið gerir mann líka mun formlegri. Þess vegna er það rosalega samræmislaust að vera ógirtur og með bindi.