Við erum greinilega ekki að tala um sömu týpuna.
Ég er að tala um þig, jaðarrokkarann.
Nafnið á MySpaceinu er “fuckyourpromises”, en ekki “matta14” eða eitthvað álíka, þar sem það er ekki frumlegt.
Ég spila á kassagítar, sem ljóð, ég gata og ég hanna föt.
Ég er mjög djúp manneskja, ég rökræði allt, ég segi það sem mér finnst.
Fólki finnst ég vera skemmtileg, fyndin og með skrýtinn hlátur.
Ef ég labba framhjá random manneskju og finnst hún/hann vera ógeðslega sæt/ur og/eða falleg - þá hika ég ekki við það að tjá mig.
Þú ert með mynd af gameboy tölvu og litríkum sólgleraugum. Mynd af stelpu með litað svart hár og glingur í andlitinu og skrifar hjá henni “SESSADEVINE IS BEAUTIFUL AND I LOVE HER<33345”
Þú nefnir myndaalbúmið þitt “pornography.”, eins og áreiðanlega fimm þúsund aðrar telpur. Pornography, það er eins og photography.
Og nau, “orgy”. Vá, þú ert ekki lokuð fyrir kynlífi, flott.
Allar myndirnar í albúmunum eru með ljóði með sér. Auk þess er stelpan með einhver risastór gleraugu, full af tilgerð. Eyrnalokka sem eru peace merki.
Það eru allir með litað svart hár. Svo er gæi þarna sem er með síðan dökkan topp sem heitir Josh eða eitthvað, það er fokkin gay.
Svo eru myndir af einhverjum tónleikum hjá jaðarrokkurum eins og þér.
… Bíddu, ég sá þig í Séð og Heyrt þegar ég sat á hárgreiðslustofu einhverntíman. Áhugavert.
Rosalega finnst mér kjánalegt að vera að setja út á einhverja random 14 ára emo tjásu á Huga, en ég varð bara að sýna fram á þessa steríótýpu í þér.
Þú finnur þetta á svoooo mörgum MySpaceum.
Ble.