Nei alls ekki, hún er bara mjög fallega vaxin og alls ekkert feit. Meira að segja með allveg sléttan maga. En ef hún væri í Hollywood væri hún talin spikfeit.
Ég horfði á þátt sem heitir The True about size zero. Þar spjallaði konan við einhverja fræga manneskju í Hollywood. Vissi samt ekki hver það var. Hún var mjöööög grönn, eiginlega of grönn. Hún var einhverntíman út strönd og beygði sig svona niður. Þá komu smá fellingar á magan (sem gerist hjá öllum og hjá henni voru fellingarnar í raun bara skinn). Mynd af henni vera að beygja sig kom á forsíðuna og það fylgdi texti með þar sem stóð að hún væri spikfeit. Þetta hafði mjög slæm áhrif á hana og líka á dóttur hennar (eða einhverja nákomna). Hún spurði sjálfan sig: ,,ef hún er feit, þá hlít ég að vera feit líka.“
Hvert er heimurinn að fara?
Þetta er hryllingur. Ég held að ef módel munu verða venjulegar eða aðeins ,,þybbnar” og pressan á hollywood fólkið að verða svona mjó mynndi minnka mikið þá myndi þessi sjúkdómir einnig minnka á börnin, unglinganna og fólkið sem lendir í þessum hryllingi.
An eye for an eye makes the whole world blind