-_-
Okey, þér finnst auðveldara að horfa á föt þegar einhver fullkomin kona með flottar línur er að sýna fötin, en það getur reynst erfitt fyrir sumar konur að fá ‘flott’ brjóst og fá fullkomin rass. Svo það myndi varla láta konum líða neitt betur með sig. :)
Módelin eru bara gangandi herðatré, ég hef sjaldan séð hátískuföt sem mér finnst flott, kannski er það út af því að módelið ber þau ekki, ég veit það ekki.. EN, ég er ekki að segja að öll módel eigi að vera grönn, heldur aðeins að það eigi ekki að banna þær grönnu, finnst það algjört rugl.
Síðan hef ég ekki tekið eftir því að athyglin sé að beinast af fötunum út af því hve grannt módelið er. Ef módelið fær umfjöllun er væntanlega sýnd mynd af því í fötunum sem hönnuðirnn lét það klæðast, þá ættu fötin að fá auglýsingu á sama tíma og vaxtarlag stúlkunar.
Einnig beinist athygli manna að óheilbrigðu mjóu stelpunum, ég er ekki að tala um þær, þær eru veikar og eiga ekkert heima í þessum bransa, ég er að tala um náttúrulega mjóu konurnar og að fólk eiig að hætta að hrópa að þeim að þær séu með anorexíu og séu slæm fyrirmynd. Þær bara fæddust svona. Urðu ‘heppnar’ eða eitthvað?
Annars veit ég voða lítið um þessi mál, alveg ekki neitt um tísku. En það er mitt álit að fólk eigi að hætta að vera með svona mikla fordóma gagnvart grönnu fólki.
Deyr fé, deyja frændur,