Hér er smá saga af þeim (póstaði þessu annars staðar og ætla að nýta mér það, þar sem ég nenni ekki að skrifa þetta aftur):
Man þegar ég asnaðist í þeim í skólann og svo í langa verslunarferð á Oxford Street (þannig að með heimferð voru þetta svona… 11 tímar í skónum), svo undir lokin var ég komin með svo margar blöðrur og sár (sem fossblæddi úr, ég þurfti að þrífa skóna vel og vandlega þegar ég kom heim) að ég labbaði hægar en ég veit ekki hvað… Það tók mig oftast svona 10-15 mínútur að labba frá lestarstöðinni og heim, en þennan dag tók það 40 mínútur. Sársaukinn :'(