Þetta er kanadíska súpermódelið Jessica Stam sem þykir mjög heit í dag. Hún er með þetta baby doll look sem er vinsælt í dag. Mér finnst hún einmitt mjög falleg.
Hún er rosalega falleg, en mér finnst hárið hennar frekar gervilegt, sérstaklega á hægri hliðinni alveg við rótina…svona eins og þetta sé gert úr….einhverju öðru en alvöru hári… hehe..
Það er greinilega búið að vinna aðeins með hárið á henni fyrir myndatökuna. Hin myndin hér á tíska sýnir hárið á henni eins og það er (eða ég geri ráð fyrir því).
Já ég var líka alveg viss um að hún væri ekki svona náttúrulega hvíthærð, sbr. augabrúnirnar á henni…Það sést alveg hvað það er búið að lýsa á henni hárið…það er svona…frekar… líflaust..
ég var einmitt að láta lita hárið á mér svona ljóst….. mér finnst svolítið eins og fólki finnist það ekki flott en MÉR finnst það fara mér geðveikt vel…..
GRRR ég verð að hætta að hugsa um hvað öðrum finnst um mig!
konurnar á hárgreiðslustofunni sögðu að það færi mér vel… ég er líka mjög ljós týpa þannig að það fer mér vel… fólk á kannski bara erfitt með að venjast því.
Ekkert smá flott mynd og hún er ekkert smá sæt en það er augljóst að það er buið að vera að photoshopa þessa mynd verulega!! einsog t.d sést á augunum og hárinu!!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..