vá rosa umræða sem kom útaf þessari litlu athugasemd minni…. hehehe
það er bara ekki hægt að neita því að margar ungar stúlkur hafa brenglað veruleikaskyn á heilbrigðan kvenlíkama.
Tökum sem dæmi, ég var að ræða við vinnufélaga minn, 17 ára stúlka. Kunningastelpa hennar kemur inn í sjoppuna og þegar hún er farin aftur segir vinnufélaginn “ojj hvað hún hefur fitnað mikið” og ég, sem vil alls ekki telja mig vera feita bara “venjulega” segi “fyrirgefðu en þessi stelpa er grennri en ég og þér finnst hún vera feit”
Stelpan stamaði í nokkrar mínútur og samtalið endaði á því að ég móðgaði hana með því að segja að mér þætti svo sætt þegar stelpur væru með bumbur svona eins og litla bumban sem hún er með…. þetta er svo vel grönn stelpa með svona sæta bumbu…. og já hún alveg sármóðgaðist!
…mér finnast bumbur vera sætar…. ég er með bumbu, og risamjaðmir og læri, stór brjóst en grannt mitti…. er það ekki annars “kvenlegur vöxtur”?