Hann var svoo mikil dúlla þegar hann var í Jackson 5. Með svo sætt stórt nef og algjört krútt. Og á þessari mynd er hann æðislegur. Tónlistin hans er frábær.
held samt að það hafi verið þannig að pabbi hans var alltaf að segja við hann hvað hann væri ljótur og væri með ógeðslegt nef og svona frá því hann var bara krakki og þess vegna hafi hann farið í allar þessar lítaaðgerðir…
veit samt ekki hvort þetta sé satt man bara að pabbi sagði mér þetta þegar ég var krakki..
hef alltaf verið svo skotin í honum sem barn :P
Ef þér lýst ekki á það sem þú sérð hættu þá að horfa…
Já ég heyrði þetta með pabbann líka einhverntímann, var bara ekki viss um hvort það væri rétt svo ég setti það ekki með. Pabbi hans hlýtur að vera geðbilaður, að gera barninu sínu þetta. Ef eitthvað hefur áhrif á krakka og hvernig þeir koma út og lifa sínu lífi, þá eru það foreldrarnir.
Já, það er rétt. Samanber Britney Spears. Hún var alveg svakalega fræg sem unglingur (þó að Michael hafi byrjað fyrr en hún held ég) og já, maður veit nokkurnveginn hvernig farið hefur fyrir henni. En svo er náttúrulega fólk sem varð frægt á sama tíma og hún og jafngamalt, eins og Justin Timberlake & Christina Aguilera, en þau voru kannski ekki eins fræg og hún.
Það var ekki vegna þess að pabbi hans sagði að hann væri með ljótt nef, heldur vegna þess að hann var með sama nef og pabbi sinn. Pabbi hans misþyrmdi honum og Jackson fyrirleit hann, ergo nefaðgerðir.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..