Hmm mætti segja að þetta sé eitt umdeildasta fatamerkið á landinu:) Annað hvort elskarðu það eða hatarðu það. Ég á einar Dieselbuxur sem ég keypti fyrir 2 árum, og ég elska þær. En annars er ég ekki Diesel-frík, eins og svo margir:)
Skil ekki þetta ‘For Successful Living’, hvernig gallabuxur geta gert það :D En annars á ég ekki og hef aldrei og mun ábyggilega aldrei eiga diesel buxur þó þær séu alveg flottar sumar þá ekki einhvað fyrir sjálfa mig :)
æj veit ekki, bara ógeðslega dýrt merki og erfitt fyrir mig að finna stærð sem passar vel í mittið og eru eki of síðar, en þá þyrfti samt að stytta sem kostar líka pening…en býst við að éggæti alveg hugsað mér að eiga einar þó að muni ekki gerast
VÁ ég var búin að steingleyma því að ég keypti mér Diesel buxur um daginn. Daamn, þær eru samt einum of dýrar oftast bara rugl. Þær voru líka flottari hérna einusinni. Ég kaupi sjaldan Diesel merki en á einar sem ég keypti fyrir um tveimur árum og elska út af lífinu. Það reyndar á það til að gerast með Diesel buxur sérstaklega (allavega sniðin með hliðarvösum og engum rassvösum) hef ég tekið eftir að þær eyðast og þessar buxur sem ég elska svo heitt eru allar gauðrifnar í klofinu og aðeins út á læri.
Ef Diesel buxur væru ekki svona dýrar myndi ég eflaust kaupa mér, en afþví þetta er svona dýrt, nei takk..frekar vil ég kaupa mér 3 flottar gallabuxur, í staðin fyrir 1 dýrar diesel…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..