Við erum greinilega ekki með sama smekk, samt sæt stelpa. Mér finnst fötin ekki gera nógu mikið fyrir þig, þú ert samt alveg greinilega frekar vel vaxin. Finnst það vanti að sýna að þú sért með mitti í þessum fötum, vanti soldið kvenlegu línurnar. En þetta er auðvitað bara mitt álit :).
Ekki beint ljótt en… bara ekki nógu áreynslulaust. Það er eins og þú hafir verið heillengi að basla við að setja saman einhverja flipp fatasamsetningu.
Vá, ég held meira að segja að þetta hafi verið uppbyggileg gagnrýni. Duglega ég. ^__^
nei.. ég var reyndar að meina closet.. þ.e. semsagt fataskápur eða önnur hirsla undir föt =) Stíllinn þinn er augljóslega frekar mjög líkur mínum þ.e.a.s. =)
Bætt við 23. nóvember 2006 - 14:31 ftm.. þú býrð í dk right?.. köben eða? og hvað ertu búin að búa þarna lengi?.. ég bjó einmitt í kaupmannahöfn á svipuðum tíma í fyrra =)
Frekar mikið að gerast þarna. Ég myndi losa mig við brúnu peysuna….því að bolurinn undir virðist vera frekar “létt og leikandi” þá færðu kannski meira svona “loose” tilfinningu og mér sýnist þú vera í stígvélum sem ná frekar hátt upp. Ef þúrt minnst í bekknum eins og þú sagðir þá ættiru kannski að vera í svona fallega netta spariskó með hæl á stærð við svona 1 lilla putta svo þú brjótir ekki fótleggina í búta og þar af leiðandi styttir þær. Láta fötin byggja mann upp þar sem manni vantar eitthvað :Þ
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..