Sammála því að þeir séu harðir og frekar óþægilegir til lengdar en mér finnst þeir hins vegar svo töff að ég hef alltaf látið mig hafa það að ganga í þeim. Var síðan stödd úti í Bandaríkjunum um daginn og var að kaupa Converse skó þegar afgreiðslumaðurinn sýndi mér einhver ný gel innlegg sem þeir selja fyrir þessa skó. Ég keypti eitt par á 14 dollara og Converse hafa aldrei verið þægilegri, núna eru þeir án efa þægilegustu skórnir sem ég á. :)