Vitið þið hvar er hægt að fá göt-og þá er ég að tala um hjá fagmanni..! Ég er helst að meina sko fyrir augabrúnina. En má ég spyrja: finnst ykkur flott að sjá stelpur með lokk í augabrúninni?
mér finnst ekkert mjög flott á stelpum að fá sér gat í augabrúnina, sérstaklega ekki ef þær eru með mikið plokkaðar augarbrýr en það getur stundum verið í lagi…:)
JP Tattoo á Laugaveginum t.d. -allavega í guðanna bænum ekki fara í Hókus Pókus eða eitthvað, bara af því það er aðeins ódýrara.. persónulega finnst mér þetta ekkert alltof flott á stelpum yfirleitt, en ef þú heldur að það færi þér vel þá go for it ! hugsaðu bara málið vel fyrst, þú átt eftir að fá ör eftir þetta ;)
Er ekki viss hvað stofan heitir en stofan er í Hverfisgötunni…þetta er bæði tattó-stofa og piercing-stofa….vinkona mín fékk sér lokk í naflann þar í fyrrasumar og það er ekkert að hjá henni :)

Leely “Seize the moment coz tomorrow you might be dead” –>kíkjiði á síðuna mína
já annars myndi ég frekar mæla með því við þig líka að fá þér bara gat í naflann í staðinn fyrir augabrúnina, það er miklu flottara og sést minna-minna mál að taka það úr ;) já eða tunguna… bara mitt álit hehe :D
Ég hef heyrt að stelpur sem fá sér gat í naflan og verða síðan óléttar slitni út frá gatinu.

*-*-*-*-*-*-*-*-*-*-*-*-* I'm so happy because today I've found my friends … They're in my head *—–Nirvana—–* metal at box dot is
mér finnst aldrei flott að sjá göt annarsstaðar en í eyrnasneplum; þá báðum á kvenfólki, en aðeins öðrum á karlmönnum…

Tríó Bjölla klikk, því þú þarft að fara í bað!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..