Ég er ný byrjuð í ræktinni en ég var að spá í ef ég mundi svelta mig og vera í ræktinni eða borða 1/2 epli eftir rækt og síðan 1/2 ehv eftir hádegi mundi ég samt grennast?
Nei, alls ekki svelta þig! Í fyrsta lagi hægir það á brennslunni því líkaminn sér ekki fram á meiri næringu og fer því að reyna að brenna sem minnst. Í öðru lagi er þetta mjög slæm leið til að grennast því ef þú missir kílóin óeðlilega hratt eru meiri líkur á því að þau komi aftur. Borðaðu mikið af hollu fæði og farðu í ræktina. Plís, ekki svelta þig!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..