ég fór hjá harlenging.com (eða is, man ekki og nenni ekki að gá) í sumar og þar kostuðu 100 lokkar 30.þús.
Mér fannst þetta vera mjög flott, ég var spurð þegar ég kom í skólann hvernig ég hefði getað látið hárið mitt síkka svona fljótt yfir sumar, og ég var virkilega logið að fólki að ég hefði farið á hárkúr og þessvegna verið með svona sítt hár. Auðvitað ef maður fór að grandskoða hárið þá sást að þetta var ekki manns eigið.
Annars fannst mér þetta ekki eyðileggja hárið mitt neitt, ég tók lengingarnar bara úr með töng og olíu, og þurfti bara að þvo hárið vel til að ná olíunni úr, og þegar ég var með hárlengingarnar notaði ég bara 2 hverja viku góða djúpnæringu og þá héldust þær flottar :)