þetta eyðilagði hárið mitt lítið, held það hafi verið vegna þess ég var svo dugleg að næra það vikunum og dögunum áður en ég fór í tímann, og held það hafi líka verið ástæðan fyrir því að hárið mitt tók illa við permanentinu, mér var allavega sagt að eftir því sem hárið væri fínna og mýkra því minni krullur kæmu úr permanentinu, og ef hárið þitt er illa farið þá færðu meiri krullur, mínar krullur haldast allavega takmarkað í því ég er með svo fíngert hár, verð að bleyta það og nota enga hárnæringu eða neytt og setja svo þvílíkt mikið af froðu þá fæ ég flottar krullur.
þó það sé flott að vera með krullur er það þvílíkt vesen, það er allavega ekki sjéns að fá krullur hjá mér nema bleyta það og klípa það svo á milljón með froðu í. ég er of löt til að hafa krullur daglega haha.
Sá er sæll er sjálfur um á