Pólóbolir eru ekki það sama og pólóbolir. Strákar í pólóbolum frá Hagkaup eru ekki töff, en það eru alveg til pólóbolir sem eru mjög fallegir í sniði og lit. Það er flott.
Sjá t.d. muninn á
þessu(linkur) og
þessu. Maðurinn í bláa bolnum er alls ekki flottur, en hinn er bara mjög nettur.
Ef þú finnur pólóbol einhversstaðar sem passar fallega á þig (það skiptir langmestu máli að hann passi fallega á þig), þá er það bara mjög gott mál. Víðir pólóbolir með ermar niður á olnboga eru hins vegar mjög ljótir. Ef rekst á pólóbol frá góðu merki (Ralph Lauren, Hugo Boss, Calvin Klein, Brooks Brothers, o.s.frv) sem er á viðráðanlegu verði, þá er það mjög líklega þess virði að máta hann.
Sjálfur klæðist ég ágætlega oft pólóbolum, og ég á einmitt einn frá Hugo Boss og einn frá Ralph Lauren, og þeir eru mjög flottir.