Horfðu á American Psycho og take your pick af öllum þeim sjúklega nettu 80s-90s executive hárgreiðslum sem þar er að finna. Sjálfur er ég sérstaklega hrifinn af Bateman sjálfum.
Það er til alveg hellingur af flottum greiðslum fyrir lubba. T.d. eitthvað í stíl við
þetta (linkur), einfalt en getur verið mjög töff, þetta þarfnast líka ekki mikils viðhalds ef þú ert með liði eða krullur. Ég er sjálfur með svipað einmitt núna, nema töluvert krullaðra.
Þessi piltur (linkur) ákvað að snoða bara hliðarnar og hafa restina bara einhvernveginn. Mér finnst þetta kúl.
Pældu bara aðeins í þessu, skoðaðu kannski einhverjar myndir á netinu, en þú hlýtur samt að hafa einhverjar grunnhugmyndir um það hvernig þú vilt hafa hárið. Gangi þér vel!