Ég mun aldrei, aldrei, aldrei aftur láta karlmann snerta á mér hárið með skærum!!! Það er búið að skemma hárið mitt :(
Ég fór í klippingu áðan og kallinn klippti á mig hálfan topp.. alveg þráðbeinan hálfan topp.. ég er eins og gluggi með gardínu sem er bara dregið öðrum megin fyrir.
Kannski verð ég samt sáttari með þetta á morgun eða eitthvað en mér líður ömurlega.. það er mjög leiðinlegt að vera ósáttur með nýja klippingu! GARG!
og svo fór vinkona mín í klippingu hjá einhverjum öðrum gaur og hann skemmdi á henni hárið líka… djö..

Bætt við 15. júlí 2009 - 20:23
jeij.. fór og lét laga í dag… allt annað líf