Ég ætla nú bara að mæla sérstaklega á móti einni stofu. Vinkona mín sá auglýsingu (auglýsingarnar sem eru alltaf í séð og heyrt með stelpunni sem er með hárið út um allt útaf viftu og svona rauðleit auglýsing) og henni leyst mjög vel á þetta, pantaði tíma og fór á heimilisfangið, þá komst hún að því að þetta var heimagert, vinkona mín fór bara heim til konunar þar sem hún gerði þetta og ekkert mál, hún kom til mín í vinnuna og sýndi mér þetta og þetta var rosalega flott. Nú eru liðnar 2 vikur síðan og hárið hennar er hræðilegt, það er eins gervilegt og á barbídúkku, þessi vinkona mín kíkti á nokkrar professional stofur og þær segja allar að þetta sé nylon hár sem vinkona mín fékk en var sagt að þetta væri alvöru hár. Passaðu þig bara á þessu :)
Sá er sæll er sjálfur um á