Hvaða stíll sem er getur gert þig kúl, það fer bara eftir persónuleika og hvað þér finnst flott. Mæli með að þú reynir að sjá þig fyrir þér í huganum eins og þér finnst að þú værir kúl. Ef að þú getur það ertu vel settur.
Síðan þarftu að eiga dágóðann skilding, mis mikið eftir því hvað þú heldur að fari þér best. Þú nefnir sértsaklega hnakka og hip-hop, ef að þú vilt stefna í þá átt hvað varðar fatastíl myndi ég gera ráð fyrir þónokkrum útgjöldum. Þú þarft samt varla að endurnýja allan fataskápinn, en eitt stykki alklæðnaður úr 17 eða Exodus fer ekki undir 25.000 kall. Og það er ekki einu sinni með skónum teknum með.
Ef þú ert ekki viss hvað þig langar í gæti verið ágætt að fá ráð frá starfsfólki í verslun, en mundu að þú ert sá sem tekur lokaákvörðun, og ekki láta pranga neinu rándýru drasli upp á þig nema þé finnist það nógu flott á þér til að vera þess virði.
Og að sjálfsögðu væri svo ráð að vinna í sjálfstraustinu þegar þetta er búið, en ég get alveg kvittað fyrir það að endurfinna sig gefur ágætis byrjunarboost á það.
Hvað skallan varðar er ráð að snoða sig. Svo geturðu verið með höfuðfat sem passar stílnum þínum ef þú ert eitthvað extra miður þín yfir þessu.
Og já, mér dettur ekki fleira í hug. Gangi þér alveg svakalega vel með þetta, og ég er viss um að þú munt ekki sjá eftir þessu :)
Atheists believe in the Goddess Athe, who is wise and powerful beyond measure. They are some of the most religious people in the world.