Aldur kemur þessu við að því leiti (hvort sem þú dróst hann inn í þetta eða ekki) að sjónarsviðið og félagsfræðileg/sálfræðileg hugtaka tenging er ekki eins þroskuð og hún getur orðið og verður með smá lærdómi og rökhugsun. Þú ert á gelgjuskeiðinu hvort sem þér líkar það betur eða verr og það þarf ekki að vera slæmt að neinu leiti - þetta kemur nú eftir allt saman fyrir alla.
Ástæðan fyrir því að systir þín tekur sjálfstæðar ákvarðanir ekki ekki vegna þess að hún sé útskúfuð eða lúði að einhverju tagi, heldur sér hún ekki ástæðuna í hlutum eins og að mála sig hugsanlega eða finnur ekki þörf fyrir að brotna undan hópþrýstingi. Það er ekkert samasem merki á milli þess að vera á gelgjunni og þrá neikvæða athygli - endilega. Þó svo að þetta sé einmitt aldurinn þar sem þörf fyrir viðurkenningu er mikilvæg - oft leita krakkar í viðurkenningu af vitlausu tagi t.d. með að reyna að fullorðnast hratt as in að mála sig eða klæða sig ögrandi.
Enn það finnast nú stelpur sem ljúga um júkrahúsferðir og fjölskylduvanda til að fá attygli. Þá finnst mér betri að taka mynd af sér hálfnaktri og fá allavegna sönn svör, á sönnum hlutum.
Hér ertu komin á mótsögn við sjálfa þig. Þú segir að athyglin sé ekki slæm heldur partur af “nútímavæðingu” en segir svo hér að athyglin sé infact ekki góð. Athyglisýki þarf ekki að vera slæm þar sem hún er partur af því að þroskast - partur af því að vilja vera viðurkenndur. Ég vil vitna í mig aftur hérna að ofan þegar ég segi þér að viðurkenning sé ekki slæm nema hún komi frá vitlausum aðilum um vitlausa hluti - as in að láta viðurkenna sig fyrir athæfi eins og að taka nektarmyndir af sér.
Hérna vil ég líka draga in það sem ég sagði um þunglyndið.
Það er mikil tenging á milli þess að þegar að stelpur leita að viðurkenningu fyrir þessi athæfi sem ég talaði um hérna að ofan og þegar þær leita hjálpar vegna þunglyndis. Viðurkenning fyrir þessa hluti ýtir að vissu leiti undir sjálfstraust að einhverju leiti en þegar myndirnar hafa dreyfst um allt netið, þú hefur sofið hjá fleirum en þú ætlaðir þér, orðsporið er í molum og etc. etc. þá er þessu neikvæða viðurkenning ekki eins eftirsóknarverð og hún var áður. “Grasið er alltaf grænna hinumegin” á vel við í þessu tilfelli.
Núna ertu semsagt að tala um stelpur sem eru eins og þú. Þú notar semsagt þig sem góða fyrirmynd?
Ég þekki margar stelpur sem er ‘meðvit í kollinum’ málið er bara það að þær öfunda allar þessar heimsku stelpur.
Ég tel mitt hugarfar gagnvart hlutum eins og þessum mjög góð fyrirmynd þó ég segi sjálf frá. Ef allir myndur temja sér þennan hugsunarhátt ættum við ekki við þetta vandamál að stríða.
Ég kallaði engan heimskan svo við höfum það á hreinu. Þetta byggist venjulega á óþroska, lélegu sjálfstrausti, hópþrýstingi og vangetu til að sjá hvað er manni virkilega fyrir bestu. Einhver einsdæmi eins og þú tekur um þig og systur þína eru ekki dæmi sem afsanna kenninguna - heldur einn dropi í hafið og ómarktækt þegar kemur að svo stórum hóp - mörg þúsund krakkar. Meðaljóninn segir meira en eitt dæmi, mundu það.
Ég sjálf ákvað að byrja að mála mig þegar ég var í 7.bekk, vegna þess að mér finnst stílar eins og goth lolita, visual kei og scene, mjög ágætir fyrir mína sjálfsmynd. Það var sjálfstæð hugsun, þú getur á engann hátt neitað því.
Þó að maðurinn viti að hann viti þarf það ekki að þýða að hann sé fær um að taka ákvarðanir með tilliti til sín og annarra endilega. Allir taka sjálfstæðar ákvarðanir - það skipar enginn ungabarni að byrja að tala, það tekur ómeðvitaða ákvörðun um að gera það sjálft. Ákvarðanataka í sjálfstæðri hugsun beinist ekki alltaf í átt að því rétta. Sjálfstæð ákvörðunartaka getur byggst á óraunhæfum markmiðum sem dæmi; “allir eru að gera það svo ég ætla að gera það líka”. Þetta eru augljóslega ekki marktæk rök hjá þér.
Það að þú skulir alhæfa svona útfrá eigin upplifun er afar barnalegt. Öfund kemur þessu eflaust e-ð við í einhverjum tilfellum sem er afar sorglegt þar sem að ungt og fólk dettur í þá grifju að trúa því að vinsældir séu eina leiðin til að stuðla að hamingju. Sem betur fer er nóg af ungu fólki sem áttar sig á því að hamingja felst ekki í vinsældum. Einnig skulum við átta okkur á því að það er engin bein tenging á milli stelpnanna sem ég er að skjóta í kaf og vinsælda eða heimsku. Afar mikið af stelpum sem eiga ekkert gera þetta líka. Viðurkenningarþörf er ekki háð stöðu í samfélaginu.
Ég skil ekki alvg afhverju né til hvers, en sannleikurinn er að allir vilja atygli, allir vilja vera miðpunktur atyglinarþ ÞEssvegna talar maður ílla um alla sem eru ekki eins og þið sjálf, þannig að á endanum, kanski, langar þeim að vera eins og þú.
Allir vilja athygli - það er ein af grunnþörfum mannsins. Hinsvegar þarf fólk að gera greinamun á jákvæðri og neikvæðri athygli. Skorturinn á jákvæðri athygli er sem dæmi ein af rótum vandans sem ungar stelpur eiga við að stríða. Þessi þráður er eflaust full dómharður og útskýrir ekki mikið en ég held og vona að það komi skýrt fram að ég öfunda svona fólk ekki - ég vorkenni því. Ég væri eflaust ekki að tuða um jákvæða viðurkenningu og heilbrigðan hugsunarhátt ef ég myndi girnast hið gagnstæða.
Ég mæli með að þú reynir að sjá þetta frá öllum mögulegum sjónarhornum. Ég er ekki að kalla þig neinn smákrakka en ég myndi ekki ræða þessi mál fyrr en þú hefur lært að alhæfa ekki, dæma ekki útfrá einsdæmum, gerir greinamun á hugtökum og getur sýnt frá á víðari skilning á mannseðlinu heldur en þú hefur sýnt fram á í svörunum þínum. Ég var engu skárri þegar ég var jafn gömul þér svo ég tel mig ekki betri en þig - ég er ekki að dæma þig.